Allt í einu eru minnisblöð einskis virði

Núverandi ríkisstjórn hefur haldið því fram, að fyrrverandi ríkisstjórn hafi verið búin að ganga frá samkomulagi við Breta strax í okt./nóv. í fyrra. Bæði Steingrímur J. og Jóhanna Sigurðardóttir fullyrða, að þau séu eingöngu að gera sitt besta til að lágmarka skaðann, sem fyrri ríkisstjórn kom íslensku þjóðinni í. Hins vegar hefur það margoft verið upplýst - og staðfest - að ekkert samkomulag hafi verið gert við Breta, hvorki um Icesave né  nokkuð annað. Hins vegar settu einn eða tveir ráðherrar fyrri ríkisstjórnar stafi sína undir minnisblað, þar sem velt var upp möguleikum og hugmyndum um hvernig þessar tvær þjóðir gætu nálgast málið. Það skal áréttað, að hér var um minnisblað að ræða, sem getur aldrei verið ígildi samnings.

   Nú bregður hins vegar svo við, að minnisblað, sem Össur Skarphéðinsson fékk frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya 29. mars þess efnis, að Íslendingar beri enga ábyrgð á Icesave samkvæmt lögum - allt í einu hefur "minnisblað" enga þýðingu. Að vísu fullyrðir Össur, að hann hafi aldrei séð þetta minnisblað. Segir líka, að það hefði engu breytt, þótt það hefði verið notað í þeim samningum, sem núverandi ríkisstjórn hefur handsalað gagnvart Bretum. Minnisblað er ekkert, sem hægt er að byggja á. Ekki núna. Steingrímur J. hefur hins vegar fullyrt, að þessu sama minnisblaði hafi verið veifað af samninganefndinni (undir dyggri stjórn Svavars Gestssonar!!) en Bretar hefðu hundsað það eins og hvert annað prump. Steingrímur viðurkennir líka -allt í einu og í fyrsta sinn - að lagaóvissan hafi alltaf verið til staðar. En þrátt fyrir óvissuna krefst hann, að alþingi samþykki þennan óskapnað, þótt samþykkið þýði, að hver einasti Íslendingur fari í þrot. Niðurstaða mín er sú, að samninganefndin, sem ríkisstjórnin skipaði til að leiða þessa samninga við Breta, var skipuð viðvaningum og þess vegna eru málin komin í þennan hnút. Mishcon de Reya bauðst til að vinna þetta mál fyrir íslensku ríkisstjórnina en það var afþakkað. Steingrímur J. og Jóhanna Sig. töldu, að íslenska samninganefndin hefði í fullu tré við þá bresku. Og þess vegna er íslenska þjóðin komin á kaldan klaka.


mbl.is „Mér er sagt það sé til“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

valg
valg
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband